Vá, langt síðan síðast... orðinn master í menntunn í millitíðinni og whatnot.
Allavega, örstutt, hrá og hress, pæling.
Umræða um ólæsi og að skólarnir eigi einhvern veginn að standa sig betur í að framleiða læsi hefur verið ofarlega á baugi undanfarið.
Mér dettur í hug hvort að það gæti verið að lausnin á þessu gæti verið að gefa meira lausan tauminn og gefa pláss fyrir alskonar.
Fyrirbæri sem ég hef gaman af eins og rokk og spunaspil eru t.d. sprottinn upp utanvið og gjarna að einhverju leyti í andstöðu við skólana og eiga rætur sínar á tímum þegar skólasókn er minni, og ef ég skil pælingarnar rétt læsi var betra. Sama á við um rætur aktívisma og jafnréttisbaráttu af ýmsu tagi.
Lausnin gæti þá verið að minnka skólasókn til að auka læsi, og/ eða breyta starfinu í skólunum yfir línuna þannig að sjálfræði og sköpun nemenda aukist til muna.
Mætti etv. orða þetta þannig að við þvingum ekki læsi upp á fólk til þess að það standi sig sem einhverjir ímyndaðir fyrirmyndarþegnar í einhverju lýðræði sem okkur finnst frábært, heldur frekar þannig að við búum til óþvingaðar og lýðræðislegar aðstæðir og upp úr þeim munu spretta alskonar elegant konur og menn sem munu móta lýðræði framtíðarinnar - sem við höfum engan grun um hvernig verður.
Hafið þökk fyrir lesturinn.
Tuesday, June 24, 2014
Thursday, November 14, 2013
út fyrir rammann...
Ég rakst á þennan frábæra pistil eftir Berglindi Tómasdóttur. Hún talar um klassíska tónlist og hljóðfæranám og grundvallaratriðið er að allur kúltúr í kringum þann heim sé að einhvejru leyti læstur í fortíðinni og bara allt of einhvern veginn 'klassískur'. Pælingin að hægt sé að ganga í gegnum áralangt hljóðfæranám þar sem aldrei er neinn spuni eða frumsamið á dagskrá er með ólíkindum - geri ráð fyrir að margir verði til að andmæla þessu, enda ekki pælingin að setja hér á miklar rökræður um tónlistarnám per se.
Það sem vekur áhuga minn hérna er hliðstæðan við almenna menntun og þá almennu pælingu að áherslan á sköpun í skólum yfirhöfuð er ótrúlega lítil. Kennsla í skapandi greinum er jafnvel ekki endilega neitt sérstaklega skapandi.....
Svo ráðlegg ég bara öllum að lesa pistilinn hennar og pæla í þessu máli - síðast en ekki síst vil ég minna á að kennsla (af öllu tagi!) er skapandi grein og ég var að fá mergjaða hugmynd varðandi ræðudæmið sem ég er með í gangi í ens103....
Það sem vekur áhuga minn hérna er hliðstæðan við almenna menntun og þá almennu pælingu að áherslan á sköpun í skólum yfirhöfuð er ótrúlega lítil. Kennsla í skapandi greinum er jafnvel ekki endilega neitt sérstaklega skapandi.....
Svo ráðlegg ég bara öllum að lesa pistilinn hennar og pæla í þessu máli - síðast en ekki síst vil ég minna á að kennsla (af öllu tagi!) er skapandi grein og ég var að fá mergjaða hugmynd varðandi ræðudæmið sem ég er með í gangi í ens103....
Thursday, October 31, 2013
Menntabloggari skoðar heiminn 2 (lýðræði í verki)
(aðvörun: þessi texti kann að innihalda kaldhæðni - bið alla að gæta að því áður en þeir gera athugasemdir. ef fólk hefur ekki vald á, eða gráðu í, kaldhæðni, mæli ég með að leita til einhvers sem það hefur áður en gerðar eru athugasemdir við einstaka þætti ritsmíðarinnar)
Quri Palomino Janns sem kennir spænsku og íþróttir tók á móti okkur og var frábær gestgjafi. Hann fylgdi okkur allan morguninn og var mjög upplýsandi og þægilegur gestgjafi.
Það fysta sem slær mann þegar maður kemur inn í skólann er veggjakrotið / -skrautið sem er út um allt. Þetta er það sem blasir við þegar maður kemur fyrst inn í skólann:

Það er nokuð ágeng stemming sem fylgir þessu - en þarna má segja að í rauninni sé það þannig að maður sjái lýðræðið í verki - krakkarnir skreyta sjálfir stofurnar með sínum eigin verkum. Sumar stofurnar eru mjög flottar, og aðrar síður - það fer eftir bekkjunum. Því miður náði ég ekki að fara um og taka myndir af mörgum ólíkum stofum - rakst hins vegar á þennan skemmtilega texta:
Þegar gengið er inn í skólann þá kemur maður beint inn í stór sameiginlegt rými. Þetta rými er í raun eins konar lýðræðistorg. Matsalur / fundarsalur / kennarastofa / afþreyjingarsvæði /listsköpunarsvæði. Það höfðaði sterkt til mín að strax á vinstri hönd var matsalan svo það leið ekki langur tími þar til maður var kominn með kaffibolla í hendina. Hvern dag er stuttur fundur kl. 10 þar sem hægt er að koma með tilkynningar og pælingar - en hvern fimmtudag er svo stórfundur þar sem teknar eru ákvarðanir um allt og ekkert sem varða skólann. Á þessum fundum eru teknar ákvarðanir um matseðil, agamál, ráðningar kennara - allt og ekkert! Allir hafa eitt atkvæði, allir starfsmenn, nemendur og kennarar.
Geri ráð fyrir að það séu tvö atriði sem eru frekar sláandi í þessu. Annars vegar að opna rýmið sé líka kennarastofa og að nemendur kjósi um ráðningu kennara. Quri kynnti okkur fyrir Søs Bayer sem er rektor skólans og var einmitt líka kosin í embættið með þessum hætti. Við ræddum þessi mál við kennara og nemendur og eitt atriði sem nemendurnir lögðu mikla áherslu á var gott samband við kennara. Þann skamma tíma sem við vorum þarna var ekki annað sjá en að samband milli kennara og nemenda væri mjög óþvíngað og eðlilegt. Ég hjó eftir að einn af nemendunum sem við töluðum við sagði að þau væru ´vinir' kennaranna - en svo leiðrétti hún sig og sagði að það væri ekki rétta orðið.
Quri sagði að hann liti svo á að þetta kerfi hefði fleiri kosti en galla Stærsti gallinn er hversu langan tíma hlutirnir taka. Annar galli er að stundum eru ákvarðanir ekki góðar. Ég reyndar þekki ekkert kerfi sem getur ekki af sér vondar ákvarðanri. Góður stjórnandi með mikið vald getur líka gert mistök. Reyndar veit ég ekki til að slíkt hafi gerst í Versló, en það er undantekning.
Fyrsta upplifun okkar var stuttur fundur af þessum toga. Margir tóku til orða, en þátttakan var bara lítill hluti nemenda. Flestar meldingar voru um eitthvað tengt félagslífi eða starfi hinna ýmsum nefnda. Nefndastarfið er grunnur lýðræðisins og á stórfundum leggja hinar ýmsu nefndir fram sín mál. Gaman að því að rektor tók til máls og ræddi um umgengnismál - sum mál eru þess eðlis að þau þarf að ræða alls staðar og stöðugt!
![]() |
| Gefið til kynna að mðaur vilji orðið |
Det frie getur ekki flokkast sem róttækur lýðræðisskóli, líkt og t..d. Sudbury Valley. Ástæðan er sú að starfsemi skólans, eða meginhluti hennar, er menntaskóli sem starfar samkvæmt reglum og fyrirmælum yfirvalda. Nemendur taka samræmd stúdentspróf. Tilraun skólans (samkvæmt ákvörðun fundar) fyrir nokkrum árum til að koma á frjálsri mætingu var tekin föstum tökum og stöðvuð af yfirvöldum. Skólinn er einkaskóli með svipðum hætti og Versló - og oft eru slíkir skólar í spennandi og dýnamísku sambandi við yfirvöld af ýmsum ástæðum.
Ágætt er að halda því til haga að skólinn útskrifar nemendur sem eru háir á stúdentsprófi. Sterkustu greinarnar þeirra eru félagsgreinar og hugvísindi. Raungreinar sækja í sig veðrið. Skapandi greinar hafa sterka hefð þarna, en í núverandi andrúmslofti í menntamálum eiga þær undir högg að sækja hér sem annars staðar.
Við heimsóttum hin einstaklega sjarmerandi Kazem Neisari þar sem hann var að kenna líffræði. Líffræðistofan er undanþegin veggjakroti - sem er mjög eðlilegt þegar þarf að gæta að hreinlæti í tengslum við tilraunir o.s.frv. Verkefni nemenda var að rannsaka sjálfa sig, varðandi blóðþrýsting og ýmsa aðra lífsstílsþætti, m.a. reykingar. Lifandi og skemmtileg kennsla og stemming í tímanum, en ekkert sem gæti ekki alveg eins verið í gangi í Versló eða hvar sem er, þannig lagað. Kazem reyndist hafa átt fullt af íslenskum vinum á námsárum sínum í Kaupmannahöfn og m.a. spilað í fótboltaliði með íslendingum og tekið þátt í 17, júní hátíðahöldum. Hann móðgaði okkur félaganna reyndar með því að hafa orð á því að við værum óvenju smávaxnir íslendingar! Kazem hafði flúið klerkaveldið í Íran, en ólst upp við mikið og þrúgandi feðraveldi fyrir byltingu. Hann þarf að ferðast langa vegalengd til að kenna í Det frie - en hann vill hvergi annars staðar vera!
Niðurstaðan var að þetta er mjög spennandi skóli og að það verður spennandi að vera í sambandi við þau og læra meira um lýðræði í verki. Það er líka hægt að sjá að nýta má lýðræði með ýmsum hætti án þess að fara alla leið. Svo er líka spurning hvort tíminn fari að koma fyrir lýðræðisskóla á Íslandi.....
Monday, October 28, 2013
Menntabloggari skoðar heiminn
Nú hefur menntabloggarinn ykkar verið þögull um nokkurt skeið - þetta á sér margvíslegar skýringar - en ekki sít þá að hann (ég) hefur verið á flakki um veröldina.Fyrst fór hann (ég) til USA - nár tiltekið Boston og heimsótti þar ægilega fínan einkaskóla St Georges -
og svo hinn massívt flotta háskóla Harvaard.
Markmið ferðarinnar var að fræðast um Mindfulness í kennslu og í stuttu máli lukkaðist það vel
Í því samhengi stendur tvennt klárlega upp úr að mínu mati.
1) 5 mínútna hugleiðsla í Zen anda í St Georges í kapellunni.
Sitja
Hálf-opin augu
Telja andardrætti
5 mín - 2 klst.
(hægt að byrja og enda með bjöllu, vera með reykelsi og e-ð - en það er óþarfi)
Hún semsé gerir ekki mikið með hugleiðslu - en - mér finnst samt eins og að einhverju leyti séu hennar pælingar þess eðlis að þær falli vel að koan-hefðinni í Zen .... og reyndar þá líka að margvíslegum pælingum úr nútímalistum t.d.
Sp: Hefur hundur búddaeðli?
Sv: 4.33
(frumsaminn og tvistaður kóan)
Nú svo fór hann (ég) til Danmerkur stuttu eftir að ég (hann) kom heim frá USA og heimsækir þar (enn) Rysensteen menntaskólann í miðborg Kaupmannahafnar. Fyrsta alvöru heimsóknardaginn hefur þetta gengið á:
-Trúarbragðatími með íslendingum og dönum (5S úr Versló er semsé að heimsækja 3X hér og við erum 2 kennarar og skólastjóri frá Versló). Í þessum tíma glímdu tæplega 60 nemendur í hópum við klípusögur sem Johanna hafði valið saman.... hún skipti þeim í hópa og þau komu svo með niðustöður og kynntu fyrir hinum. Kennslan fór fram í stóru fjölnotarými sem mér finnst að ætti að vera til boða í hverjum skóla.
Síðan sat ég fund með Inga um hvernig Rysensteen hefur náð að verða að skóla sem notar tölvur og upplýsingatækni með skipulögðum og effektívum hætti. Allir tímar eru lagðir upp i upplýsingakefinu og nánast öllu efni er miðlað pappírslaust. Þetta sáum við líka í verki í tímunum. Líklega er þetta alls ekki óraunhæft markmið í Versló (ég er kominn vel í áttina í minni kennslu) .... en engu að síður er ljóst að þau eru kominn miklu lengra en við.
![]() |
| kennarstofan í Rysenteen |
Svo sat ég byrjunina á fundi um töflugerðina. Rysensteen er með það sem, kallað er fljótandi töflu. Hver hópur á að fá ákveðið magn tíma í hverri grein, en svo er taflan skipulögð þannig að hægt er að leiðrétta fyrir öllum vettvangsferðum, endurmenntun kennara og öllu slíku. Þetta er algjör snilld og ætti að taka upp ekki seinna en á morgun í Versló.
Per er hins vegar mjög öflugur kennari og mér fannst kúl hvernig hann byggði tímann upp:
Upphitun (hugtakaleikfimi .... upprifjun)
Þrælavinna (svara efnislegum spurningum og ræða)
Opnari umræður (sjónarmið nemenda og opnari spurningar ræddar)
.... svo hjó ég mjög eftir því að í lok tímans stóðu nemendur upp og fóru að ræða pólítík ....
Í stuttu máli þá er Rysensteen mjög spennandi skóli. Mest spennandi er hvernig þeir nota upplýsingatækni, fjótandi taflan og svo virkilega áhugasamir og öflugir kennarar og nemendur - og svo líka öflugt alþjóðasamstarf!
Á morgun heimsæki ég
svo með Inga Det Frie Gymnasium og kynnist þá lýðræðisskóla í verki. Blogg um það mun svo fylgja.
Monday, September 23, 2013
Traust
"Á móti trausti læt ég koma traust, á móti vantrausti læt ég einnig koma traust, þetta eflir traustið."
Bókin um veginn
Smiðurinn frá Nasaret sagði svo líka eitthvað svipað.
(en óttast að verða stimplaður sem einhver öfgamaður ef ég fer að sítera hann)
Flaug þetta í hug af tvennum ástæðum.
Hlustaði á þetta áhugaverða og þankavekjandi viðtal Harmageddon manna við Hermann Stefánsson um Blátt áfram málið og lít þannig á að einn kjarninn í gagnrýni á málatilbúnað þeirra samtaka er hvernig það grefur undan trausti í samskiptum barna og fullorðinna almennt og yfir línuna.
Hin ástæðan er hið stöðuga og viðvarandi vantraust sem kennarar auðsýna nemendum sínum í stöðugum áhyggjum af svindlum, ritstuldum og símamisnotkun í tímum - það virðist vera það eina sem allir kennarar geta alltaf sameinast um.
Úff.
Sýnum traust - eflum traustið.
Bókin um veginn
Smiðurinn frá Nasaret sagði svo líka eitthvað svipað.
(en óttast að verða stimplaður sem einhver öfgamaður ef ég fer að sítera hann)
Flaug þetta í hug af tvennum ástæðum.
Hlustaði á þetta áhugaverða og þankavekjandi viðtal Harmageddon manna við Hermann Stefánsson um Blátt áfram málið og lít þannig á að einn kjarninn í gagnrýni á málatilbúnað þeirra samtaka er hvernig það grefur undan trausti í samskiptum barna og fullorðinna almennt og yfir línuna.
Hin ástæðan er hið stöðuga og viðvarandi vantraust sem kennarar auðsýna nemendum sínum í stöðugum áhyggjum af svindlum, ritstuldum og símamisnotkun í tímum - það virðist vera það eina sem allir kennarar geta alltaf sameinast um.
Úff.
Sýnum traust - eflum traustið.
Sunday, September 1, 2013
'Pub quiz' sem kennsluaðferð
Í sumar leið fór ég á tónlistarhátíðina All Tomorrows Parties og skemmti mér hið besta. Ég lét þar plata mig til að taka þátt í Pub Quiz um popp og rokktónlist og kom þá í ljós algjör vanþekking mín á málaflokknum. Ég hef annars ekki tekið þátt í slíkum uppákomum og formið vakti forvitni mína.
Í síðustu viku sló ég svo til með hópana mína í Ens103 og bjó til smá svona hópspurningakeppni úr efni kafla sem við vorum að fara í - efnislega og úr orðaforða. Ég skipti bekkjunum upp í hópa, hóparnir svara spurningum saman (og sumar spurningarnar voru níðþungar), og fara svo yfir svör hjá hvorum öðrum. Ég útbjó síðan skjal þar sem sigurhópurinn var heiðraður - og tók mynd af viðkomandi hóp, prentaði skjalið út og hengdi upp í stofunni.
Þetta reyndist mjög skemmtilegt. Nemendur eru mjög virkir og leggja sig eftir efninu og eru að pæla í því allan tímann - bæði meðan þau svara og meðan þau fara yfir. Það þarf vitaskuld að huga að því hvernig skipt er í hópa, en í svona leiki er engum stillt upp við vegg og allir ættu að eiga möguleika á að vera með í einhverjum hluta málsins.
Þetta er einn hluti af alsherjar viðleitni minni til leikvæðingar námsins og kem inn reglulega með fleira þegar ég prófa eitthvað nýtt!
Í síðustu viku sló ég svo til með hópana mína í Ens103 og bjó til smá svona hópspurningakeppni úr efni kafla sem við vorum að fara í - efnislega og úr orðaforða. Ég skipti bekkjunum upp í hópa, hóparnir svara spurningum saman (og sumar spurningarnar voru níðþungar), og fara svo yfir svör hjá hvorum öðrum. Ég útbjó síðan skjal þar sem sigurhópurinn var heiðraður - og tók mynd af viðkomandi hóp, prentaði skjalið út og hengdi upp í stofunni.
Þetta reyndist mjög skemmtilegt. Nemendur eru mjög virkir og leggja sig eftir efninu og eru að pæla í því allan tímann - bæði meðan þau svara og meðan þau fara yfir. Það þarf vitaskuld að huga að því hvernig skipt er í hópa, en í svona leiki er engum stillt upp við vegg og allir ættu að eiga möguleika á að vera með í einhverjum hluta málsins.
Þetta er einn hluti af alsherjar viðleitni minni til leikvæðingar námsins og kem inn reglulega með fleira þegar ég prófa eitthvað nýtt!
Thursday, August 22, 2013
Besta skólaár mannkynssögunnar
Í nýlegri Facebook-færslu frá Nassim Taleb setur hann fram eftirfarandi hvatningu:
'Be underqualified in your hobbies and overqualified in your work'
... hann leggur út af þessu með því að velta því upp að oftast sé þessu öfugt farið í samtímanum, ég leyfi lesendum að íhuga þetta sjálfum.
Hvað varðar kennslu setur hann fram þá pælingu að maður eigi aldrei að kenna neitt sem maður þurfi að fletta upp. Mér finnst þetta mjög flott hugmynd - og hef í rauninni svona að einhverju leyti fylgt slíkri línu í mínu starfi. Kannski myndi ég samt vilja bæta við að stundum hefði mátt fletta sumu upp í fyrsta skipti en síðan hafi það lærst við það að kenna það.....
Ég hins vegar lít svo að það sé ákveðin taugaveiklun sem fylgir því að vera stöðugt að fletta öllu upp og fara alltaf inn í kennslustofu með belti og axlabönd. Ef maður kann eitthvað á maður að hvíla öruggur í þekkingu sinni og ekki vera í sífelldu stresskasti að baktékka allt og ekkert - nú og þegar eitthvað er ekki nákvæmlega kórrétt eða gleymist þá er þar möguleiki fyrir nemendur að láta ljós sitt skína og alla hlutaðeigendur að læra af reynslunni.
Ég vil svo líka bæta við (sem ég hef reyndar gert áður) að það sé mikilvægari undirbúningur fyrir kennslu að vera með opin huga, hressa sál, úthvíldur og tilbúinn til að vera í miklum, virkum og áhugaverðum samskiptum heldur en að hafa legið í einhverjum skruddum til að rifja efnið upp í N-ta skipti - og - mér finnst frábærar kennslustundir sem eru sterk mannleg upplifun milljón sinnum mikilvægari en öll litfögur verkefni og gagnvirk próf veraldarinnar samanlögð.
Býð svo alla kennara og nemendur velkomna til starfa á þessu nýja skólaári - sem - líkt og nýja þingið eins Óttar Proppé benti okkur á - hefur alla burði til að verða allra besta skólaár mannkynssögunnar - það er bara undir okkur komið.
Subscribe to:
Posts (Atom)





