Um daginn kom í heimsókn til okkar í Versló Anna Kristín Sigurðardóttir og talaði við okkur um hugmyndir um nemenda í framahaldsskólum um það hvernig aðstæður þeim þættu bestar til náms. Var þetta mjög áhugavert spjall, en niðurstöðurnar sem hún kynnti eru hluti af þessari viðamiklu úttekt á starfi í framhaldsskólum. Nemendur eru hrifnir af því að sitja í eyjum, en ekki hrifnir af því að sitja í 'hefðbundinni' uppröðun, og allra síst finnst þeim gott að vinna í hefðbundinni tölvustofu - enda minna þær starfsaðstæður að nokkru leyti á það sem húsdýrum er boðið upp á og þykir ekki gott.
Stuttu eftir að hafa tekið þátt í þesari umræðu stýrði ég litlu heimspekikaffihúsi í Tveimur heimum, samæðan fór fram í kringum borð í mjög kósí herbergi með sófa, dýnu og púðum, svona jógastemming í loftinu. Og ég hugsaði um klínískt hreinu og kassalöguðu stofurnar sem ég er vanur að kenna í.
Þá minntist ég líka samræðurýmisins hjá Brenifier í Argenteuille þar sem setið er í hring á alskonar stólum, fullt af bókum er upp í hillu og heimilislegt andrúmsloft - sem reyndar getur orðið ansi intens þegar samræðan er komin í gang....
Allavega í þessu eins og mörgu öðru gæti lykilorðið verið að meira alskonar skólar og aðstæður gæti barasta verið lausnarorðið .... ef þið eigið myndir af einhverju sem passar vel við þessar pælingar þá skelli ég þeim inn í bloggið :-) ....
Tuesday, November 24, 2015
Monday, November 23, 2015
Menntun, sköpun og pönk
Ég var að lesa þessa grein um nákvæmlega sama efni eftir Martin Robinson. Þar getur að líta þetta skemmtilega pönk manífestó:

og hér er Vélin með Mosa Frænda, klárlega eitt af þeim verkum okkar sem myndi teljast pönk. Takið eftir mér þarna á trommunum, en ég held að ef ég tel mig vera hressan og hráan bloggara á það í enn ríkari mæli við um mig sem trommara:
Punkturinn sem Robinson er að setja fram er að margir sem hafa starfað að breytingum og stofnað það sem hann kallar 'free schools' hafi verið pönkarar í sér og ekki verið þrúgaðir af hátimbruðum kenningum í kennslufræði heldur bara látið vaða.
Á hversdagslegri nótum er þetta líka spurning um marga fleti á því hvernig kennarar nálgast starfið. Fara menn í hvern tíma með belti og axlabönd þrælundirbúnir með allar aðferðir og hvert smáatriði á hreinu.... eða kannski með svona óljósa hugmynd um ætla kannski að gera þetta ...nú eða kannski hitt? Eru verkefnin með ítarlegum útskýrinum um hvernig eigi að forma hverja setningu í verkefninu, eða kannski aðeins óljós, jafnvel ljóðræn....
Annar punktur sem hann nefnir er pælingin um kennaranám, og þá bæði hvort það þurfi að vera jafnlangt og það er og hvort það eigi að vera hagnýtt eða teórítískt, pönkaða svarið ætti að liggja ljóst fyrir. Námið ætti að vera styttra, hagnýtara og umfram allt meira alskonar. Talandi um alskonar þá er hérna hið dásamlega lag Creeps:

Ég segi semsé meira pönk í kennsluna og lífið, láta svoldið vaða, leyfa sér stundum að vera með dólg, gera mistök og vera drullusama þó einhver segi að maður kunni ekki að spila eða eitthvað. Lokum þessu með Reykjavík ó Reykjavík....
Sunday, November 22, 2015
Tónahlaup
Í haust var á RÚV stutt sería sem hét Tónahlaup sem Jónas Sen sá um. Í þessum þáttum komu tónlistarmenn með frumsamin lög til hópa af grunnskólanemum sem svo útsettu þau og gerðu að sínum. Ég horfði á þessa þætti með yngri dóttur minni, Sölku og við höfðum mjög gaman. Það var skemmtilegt að fá innsýn í tónlistarkennslu í nokkrum ólíkum skólum, gaman að kynnast tónlistarmönnunum betur og frábært að fylgjast með vinnunni hjá kökkunum.
Hugmyndin að þáttunum er frábær og þetta sýnir svo vel hvað það er inspíerandi fyrir krakka að horfa á aðra krakka bauka eitthvað (annað gott dæmi er skólahreysti).... það hefði kannski mátt gera meira úr þessu, t.d. með því að allir hóparnir hittust og spiluðu saman.
Eina próblemið var kannski að lögin voru mörg hver dáldið erfið, og það verður að viðurkennast að við vorum lang ánægðust með lagið hans Ingó Veðurguðs í fyrsta þættinum....

Takk fyrir okkur RÚV, og meira svona!
Sunday, August 2, 2015
Róttæk kennslufræði
Ég er meðlimur í Facebook hópi (sem ég beini þessu bloggi nú m.a. til) sem heitir 'róttæk kennslufræði'. Ekki er alveg ljóst nákvæmlega hvað er átt við með 'róttækri kennslufræði' við það að skoða lýsingu á síðunni, hún er "fyrir kennara og aðra sem hafa áhuga á róttækri kennslufræði" ....
Ég hef áhuga á róttækri kennslufræði, og ætla aðeins að pæla í þessu með því að setja fram tvo megin strauma sem mín tilgáta er að stór hluti þeirra sem deila áhuganum gætu tilheyrt...
1
Menntun sem frelsandi, mótandi afl í þróun samfélagsins
Þennan straum má rekja til pælinga um menntun sem frelsandi afl í þágu byltingarinnar og róttækra breytinga á auðskiptingu samfélagsins, spekúlantar á borð við Paulo Freire eru hér í miðpunkti. Þessa tegund af róttækri kennslurfæði er líklega helst að finna í tengslum við fullorðinsfræðslu í samtímanum, en í sinni upprunalegu mynd kannski ekki stór fídus í nútímalýðræðisríkjum. Á Vesturlöndum samtímans má segja að arftaki þessara pælinga sé breiðari hugmynd um menntun og menntakerfi sem tæki til félagslegrar jöfnunar. Ég held að allir sem skrifa undir að styðja 'róttæka kennslufræði' myndu samþykkja það. Í orði er menntakerfinu á Íslandi ætlað að vera vetttvangur félagslegs jöfnuðar, en á tímum nýfrjálshyggju og niðurskurðar hafa verið blikur á lofti. Dæmið sem ég vil taka til hér sem raunverulegt vandamál er inntaka í framhaldsskóla samkvæmt einkunnum og myndun þess sem er í hversdagslegu tali kallað 'elítúskólar'. Afleiðing þessa er viðhald stéttakerfis í hinu alþekkta og mikið lofaða 'stéttlausa' samfélags sem við búum í. Ég er líka á þeirri skoðun að inntökupróf í ákveðnar (elítu) greinar í háskólanum sé fyrirbæri sem ætti að setja stórt spurningamerki við.
2
Fjölbreyttari, lýðræðislegri, meira skapandi (o.s.frv.) kennsluhættir
Hér er um að ræða fjölbreytilegan og iðandi straum af alskonar. Grundvallarsjónarmiðið sem deilt er hér er að kennsluhættir séu of einhæfir og gamaldags í skólum almennt og að þessu þurfi að breyta. Rökin fyrir því að breytinga sé þörf geta verið margskonar, t.d. tengd straumi 1, eða jafnvel tengd því að efla þurfi 'samskiptahæfni' fyrir atvinnulífið. Suðupottur fyrir þessar pælingar eru frískólar af ýmsu tagi, lýðræðisskólar eins og Sudbury skólarnir og þess háttar. Á Íslandi má kannski segja að Hjallastefnan sé dæmi um skondnar tilraunir á þessu sviði. Það er líka skemmtilega próblematískt dæmi, ég leyfi lesendum að íhuga það sjálfum.
Niðurstaða
Ég stend með fæturna í báðum þessum straumum, en hef örugglega sinnt straumi 2 af meiri natni í starfi mínu og skrifum. Lykilorðið sem nær yfir allt sviðið er að mínu mati samt lýðræði. Lýðræði er ekki bara meirihlutalýðræð. Lýðræðislega aðferð t.d. við inntöku í framhaldsskóla væri að mínu mati e.k. blanda af kvótakerfum og slembiinntöku......

Wednesday, July 1, 2015
David Graeber
já
þetta er nú ekki beint um menntamál, en samt
Í dag hlustaði ég á bönj af vídeóum, viðtölum, samtölum og erindum með anarkistanum, occupy dúddanum og mannfræðingnum David Graeber sem er ákaflega skondinn og skemmtilegur gaur.
Óvenjulegar pælingar sem ég þarf að melta:
Sovétríkin voru svakalega öflug, og í raun er fullt af sæfæ dóti og mögulega tungllendingin óbeint afrek þeirra, hann kallaði þetta held ég 'massive dreamers'.
Innfæddir sem evrópumenn hittu þegar þeir fundu Ameríku voru hugsanlega uppreisnarmenn (e.k. 'occupy-pakk') sem voru nýlega búin að kollsteypa brútal miðstýrðum samfélögum þar sem mannfórnir og skemmtileg heit ýmis tíðkuðust.
Tækniframþróun hefur metvitað verið heft af elítu heimsins til að koma í veg fyrir að verkalýðurinn hafi of mikinn frítíma,.... og stór hluti okkar sett í það sem hann kallar svo skemmtilega 'bullshit jobs'.
Anarkistasamfélagið sem var sett upp í Katalóníu á þriðja áratugnum virkaði, en öll helstu veldi heimsins sameinuðust í að þurrka það út ( hef þetta reyndar líka frá Chomsky)....
Internetið er ekkert sérstaklega merkilegt fyrirbæri, og meginfúnksjón þess er að vera e.k. 'mechanism of control'... blanda af pósthúsi, sjónvarsstöð og bókasafni....
Mæli með gúgglun og hlustun á dúddann...
Ok bæ
Tuesday, June 16, 2015
þroski og samræming
Í kennslufræði lærðum við um eitthvað sem heitir 'starfskenning' - þ.e.a.s. grundvallarsjónarmið sem liggur að baki öllu starfi hvers kennara. Þetta er áhugaverð og umdeilanleg hugmynd. Í þessu stutta bloggi set ég fram tilgátu um að það séu tveir megin skólar af starfskenningum meðal íslenskra framhaldsskólakennara. Ég held jafnframt fram að margir kennarar séu í hálfgerðu rugli með sig af því að þeir eru að reyna að lifa samkvæmt báðum grunnsjónarmiðum, en hluti kenningar minnar er að þetta sé hugsanlega útilokað.
Fyrri skólann nefni ég 'þroskakenningu'. Þessi hugmynd er einfaldlega það grundvallarsjónarmið að kennari starfi með hópi nemenda og markmiðið sé annars vegar að þessir nemendur fari frá henni með betri þekkingu á einvherju tilteknu sviði, og helst sem aðeins betri manneskjur, í það minnsta aðeins breyttar. Þessi kenning byggir á ákveðnum sveigjanleika gagnvart ólíkum nemendahópum og aðstæðum, leggur mikla áherslu á virkni nemenda og fjölbreytni í vinnubrögðum. Lykilorð hér eru sköpun og fjölbreytileiki.
Seinni skólann er 'samræmingarkenning'. Hér er áherslan á samræmi í mælingum og yfirferð. Hugmyndin er sú að t.d. stúdent í stærðfræði eigi að kunna ákveðin atriði X, Y og Z og að hlutverk kennarans sé að sjá til þess að nemendur nái þessu áfanga við ákveðin aldur, eða á ákveðnu menntastigi. Jafnframt er kennarinn hér hliðvörður æðri menntunar sem tryggir að gæði í færni og þekkingu þeirra sem fara í háskóla sé tryggður. Hér er mikil natni lögð við að fylgja nákvæmum námsáætlunum og að gera vönduð próf. Lykilorð fyrir þennan skóla eru samræming og yfirferð.
Í grunninn aðhyllist ég þroskakenninguna, en starfa í umhverfi og innan skólakerfis sem einkennist að langmestu leyti af seinni skólanum. Ég geri mér grein fyrir að hér mála ég þetta nokkuð sterkum litum.Ef kerfið væri allt í anda fyrri skólans óttast margir að veröldin eins og við þekkjum hana myndi líða undir lok, en ég held að hún yrði bara ný og góð.

Monday, June 8, 2015
Generatív samræða
Hér kemur hugmynd að samræðuæfingu sem ég prófaði nýverið. Hugmyndin byggir á fyrirbærinu 'generative music' og er inspíreruð af vinnu minni við Biophiliu Bjarkar Gumundsdóttur.
Nemendur sitja í hring og hafa tvo miða til að skrifa á. Áður en æfingin hefst þá er fjallað um hvað regla er. Gott er að gefa sér smá tíma í þetta, og þá koma upp þessar tvær hugmyndir:
-regla eru einhvers konar siðferðileg fyrirmæli, yfirleitt þá bann: það má ekki lemja
-regla leggur fram fyrirmæli um það hvað gerist ef einhver tiltekin skilyrði eru fyrir hendi
Seinni tegundin af reglum er það sem kallað er algóriþmi og er grundvallarfyrirbæri í tölvuforritun.
Þegar komið er á hreint hvers konar fyrirbæri þetta er þá eiga allir að skrifa reglu á blað sem dugar til að velja út einn úr hópnum. Reglan gæti þá verið - sá sem hefur komið til X margra staða/ sá sem býr syðst/ sá sem er fyrstur í stafrófinu. Kennari safnar saman miðunum með reglunum.
Næst snýst umræðan að hugtökum, Hér er hægt að hafa opið eða þröngt svið, en ég valdi að tala um 'heimspekileg hugtök' - sem væru þá hugtök sem eru opin og þarfnast rökræðu til skilgreiningar, þetta eru hugtök á borð við réttlæti, fegurð o.s.frv. Mikilvægt að telja ekki upp of mörg dæmi.
Þegar komið er á hreint hvers konar hugtök á að ræða eru allir beðnir um að skrifa hugtak á seinni miðann, þeim miðum er safnað saman.
Síðan fá allir miða með reglu og miða með hugtaki. Kennari kemrur með einhverja reglu (t.d. nemandinn sem er nýastur í bekknum eða eitthvað) og sá byrjar. Viðkomandi les þá hugtakið sem hún er með og ræðir það stuttlega, markmiðið er ekki að negla það niður heldur að vekja hugrenningatengsl. Þegar búið er að komast að e-s niðurstöðu um það les hún regluna sem hún er með og sá sem er merktur þeirri reglu tekur til máls. Ef reglan virkar ekki þarf að ræða það og laga hana þannig að hún virki. Reglurnar og hugtökin eru hvor tveggja viðfangsefni rannsóknarinnar.
Kostur við þessa aðferð er ákveðið nafnleysi og að vera settur á vald reglunum. Hættan er ef settar eru fram óviðeigandi reglur, og kannski er rétt að renna yfir reglurnar áður en maður dreifir þeim, einkum hjá unglingum.
Markmið: hvað er regla, hvað er hugtak, upphitun, kynnisleikur

Subscribe to:
Posts (Atom)