Ég set hér inn smá blogg í tilefni af skemmtilegu innliti mínu til Frosta og Mána í Harmageddon núna í morgun - kveikjan var vinna mín að Klapplandi sem var fjallað um í Fréttablaðinu í gær. Ég var hæstánægður með þetta og við spjölluðum annars vegar almennt um heimspeki og hins vegar um spilið, spil sem kennsluaðferð o.s.frv. - komum svo inn á af hverju strákar sækja meira í heimspeki en stelpur og fleira gott.



Ég hef í sjálfu sér ekki miklu við þetta að bæta (öðru en hlekk á viðtalið um leið og það verður klárt), nema að mér finnst frábært að heimspeki og pælingar um kennslu komist að sem víðast og ég er mjög ánægður með framlag þeirra Harmageddon félaga í því sambandi - og finnst kúl að vera kominn í félagsskap við snákarokkara á öldum ljósvakans.