tag:blogger.com,1999:blog-8426951736702134742.post6648914396892537662..comments2024-02-16T00:17:58.716-08:00Comments on Menntamál, hrátt en hresst: Bekkjarkerfi og áfangakerfi IIMannsihttp://www.blogger.com/profile/03883380884949569927noreply@blogger.comBlogger2125tag:blogger.com,1999:blog-8426951736702134742.post-58382674299484134022018-11-19T08:04:10.072-08:002018-11-19T08:04:10.072-08:00Magnús ÞorkelssonMagnús Þorkelssonmaggibloggarihttps://www.blogger.com/profile/08664393863464845520noreply@blogger.comtag:blogger.com,1999:blog-8426951736702134742.post-15747316619354650392018-11-19T08:03:38.076-08:002018-11-19T08:03:38.076-08:00Ef ég leyfi mér að hafa skoðun á þessu sem kennari...Ef ég leyfi mér að hafa skoðun á þessu sem kennari sem kennt hefur í tveimur bekkjarkerfisskólum og einum áfangaskóla, við HÍ og í grunnskóla þá virði ég þessar hugleiðingar Ármanns mikils enda maðurinn frábær skólamaður. <br />En ég verð að segja að kerfið hefur bara ekkert með þetta að gera. Ef ég skil skrifin rétt hjá Ármanni þá á hann við umhyggjusamband kennara og nemenda eða nemanda. Ég myndi orða það þannig að segja að þar sé átt við að kennarinn láti sig varða um nemendur sína og að nemendur hans finni það að hann láti sig varða um þá sem hóp og sem einstaklinga. Í þessu efni er aðeins einn sem skiptir máli og er algjörlega óháður kerfi. Það er kennarinn sjálfur. <br />Af minni reynslu er það kýrskírt. Maður hefur lesið gnægð bóka um þetta. Ofsted - breska matsfyrirtækið fór í gegnum hundrað ára skólaeftirlitsskýrslur og komst að því að kennararnir sem fengu bestu umdagnirnar (í eitthundrað ár) voru þeir sem létu sig varða. Rauður gegnumgangandi þráður. Í bókinni 15 thousand hours er sagt frá ungmenni sem fór í gegnum glænýtt og stórglæsilegt skólahúsnæði með kennara eða skólastjóra sem spurðu ungmennið hvernig því litist á og drengurinn sagði: Its still f++++++ school. <br />Eitt þúsund nemendur (USA) sem skv. skimunarprófum voru öruggir brottfallsnemendur en urðu það ekki og luku námi voru beðnir að skýra hvað þeir hefðu gert öðruvísi. Hver einn og einasti mun hafa sagt: A teacher said to me... og það var þá eitthvað jákvætt. <br />Kennarinn ræður öllu um svona mál. Punktur. Rétt eins og skólameistarinn getur grafið undan eða byggt undir starf kennarans. Kerfi, gerð húsnæðis og slíkt er styðjandi en það skiptir ekki máli hvort þú kennir í flottasta skóla sem finnst á byggðu bóli eða á götunni í Yemen eða Afganistan. Það er viðhorf þitt til nemenda sem ræður öllu. Trúðu mér. maggibloggarihttps://www.blogger.com/profile/08664393863464845520noreply@blogger.com